Músík í Mývatnssveit

Músík í Mývatnssveit er árleg tónlistarhátíð á páskum, haldin í einstöku umhverfi. Stórbrotin náttúra, vetrarkyrrð í fagurri sveit og góðar aðstæður til tónlistarflutnings skapa heillandi ramma utan um hátíðina, þar sem tónlistarfólk í fremstu röð flytur fjölbreytta klassíska tónlist. Tónlistarhátíðin er sú eina sem fer fram utan höfuðborgarsvæðisins að vetrarlagi þar sem flutt er sígild úrvalstónlist.