Hátíðin 2026

Mozart í Mývatnssveit

Viðburðastjórinn / Der Schauspieldirektor eftir W.A. Mozart í Skjólbrekku skírdag 2.apríl og föstudaginn langa 3. apríl kl. 20.

Hvernig fer þegar tvær óperusöngkonur, umboðsmaður úr poppinu og jarðarfararsönghópur úr sveitinni bóka öll Skjólbrekku á samtímis? Skemmtilegur óperufarsi í boði meistara Mozarts.

Flytjendur og listrænir stjórnendur:

Fjóla Kristín Nikulásdóttir sópran
Lilja Guðmundsdóttir sópran
Egill Árni Pálsson tenór
Sinfóníuhljómsveit Laufeyjar Sigurðardóttur og syngjandi heimamenn
Elena Postumi hljómsveitarstjóri
Bjarni Thor Kristinsson leikkgerð, leikstjórn og bassasöngur

 Vegna umfangs verkefnisins 2026 verður óperan flutt tvisvar sinnum í Skjólbrekku, fyrri sýning á skírdag 2.apríl og sú síðari föstudaginn langa 3.apríl 2026.

www.musikimyv.is